Hér var ég að finna æðislega síðu. Er búin að gleyma mér aðeins á henni í kvöld. Þessi síða er frábær fyrir mig því að eg á ekki mikinn pening til að ferðast þessa daganna.
Síðan heitir Google Art Project. Með síðunni er hægt að skoða einhver helstu og merkilegustu söfn heimsins. Á nokkrum sekúndum er því hægt að skreppa til New York á The Metropolian Museum of Art. Svo á síðunni er gengið um safnið og listaverkin skoðuð með svo mikillri nákvæmni að það liggur við að maður standi beint fyrir framan það með smásjá. Einnig er hægt að búa til sína eigin möppu með öllum sínum uppáhalds verkum.
Þessi síða er ferðlag fyrir fátæka manninn. Hvorki þarf að borga flug til borgarinnar né aðgöngumiða inná safnið. Held að þetta borgi sig.
Wheatfield with Cypresses e. Van Gogh
Woman with Parrot e. Gustave Courbet
Mars and Venus United by love e. Paolo Veronese
In the Conservatory e. Eduoard Manet
Bal du Moulin de la Galette e. Auguste Renoir
(þetta verk er reyndar ekki á neinum af söfnunum sem eru í boði, en þetta er bara í svo miklu uppáhaldi að það varð að fá að vera með)
Linkurinn að síðunni er hér.





No comments:
Post a Comment